Flokkur: Uncategorized
-

Brauð
Váfuglinn gerir úttekt á brauðmenningu Íslands og hyllir brauðryðjendur í bakarastéttinni. Gæddu þér á nýbakaðri slæsu af Váfugli strax í dag. Það er svo sannarlega eitthvað ofan á brauð.
-

Íslensk æði
Neyslubrjálæði Íslendinga finnur sér reglulega farveg í skrítnum æðum sem ganga yfir land og þjóð. Váfuglinn skoðar hér eftirminnileg æði í íslensku samfélagi í gegnum tíðina. Smelltu þér í fótanudd, stingdu upp í þig snuddu og komdu með Váfuglinum í ferðalag um undralönd íslenskra æða.
-

2020 Jólaspecial
Eins og hefðin býður þá er hátíðarstund í þessum jólaspecial Váfuglsins./p> Enn á ný renna jól í garð og Váfuglinn tekur stöðuna. Við veltum fyrir okkur jólahefðum – hvað þarf til að skapa þær og hvernig þær eru rofnar. Við veltum fyrir okkur hvernig jólahlutir vinna sér inn forskeytið „jóla-“ og hvað er yfir höfuð…
-

Íslenskir draumórar feat. Ari Eldjárn
Í þessum þætti lítur Váfuglinn nánar á draumóra sem blundað hafa meðal íslensku þjóðarinnar, og birtingarmynd þeirra í íslenskri poppmenningu. Um hvað dreymir Ísland á daginn? Heimsfrægð? Sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna? Geimverur á Snæfellsnesi? Líklega allt þetta og fleira. Fuglinn fær til sín góðan gest að þessu sinni, hann Ara Eldjárn! Hlustendur gætu kannast…
-

Bílabingóið!
Váfuglinn tekur í þetta sinn til skoðunar hina einu sönnu ást Íslendinga – bíla. Hrifning Íslendinga á bílum virðist hafa orðið strax við fyrstu kynni, jafnvel þó svo ekkert bensín hafi verið til á landinu til að keyra þá. Í þættinum lærum við um brautryðjendur á sviði ofsaaksturs eins og Snæra-Manga. Blessuð sé minning hans.…
-

Íslenzk tízka
Að þessu sinni fjallar Váfuglinn um tískustraumana sem leikið hafa um Ísland undanfarna áratugi og hvernig þeir hafa mótað atferli okkar og stéttarvitund. Hvað er „peysa“? Hvernig vissi fólk hvað var nett fyrir tilkomu internetsins? Afhverju er svona algengt að prenta óskiljanlegar áletranir á boli? Hyldu búk þinn og útlimi með rödd Váfuglsins og gakktu…
-

Djammið vol.2
Váfuglinn lætur ekki sjúklegt ástand þjóðfélagsins stöðva sig og setur fram fallega hugvekju um skemmtanalíf Reykvíkinga í gegnum tíðina. Þátturinn er sjálfstætt framhald fyrri umföllunar Váfuglsins um „djammið“ sem mæltist vel fyrir hjá hlustendum. Sæktu þér langþráðan djammskammt beint inn á sjúkrabeðið og lærðu um tónlistarflutning og skemmtilíf liðinna alda.
-

Cinema Paradiso
Váfuglinn tekur út stöðu kvikmyndahúsa á Íslandi í þessum nýjasta þætti. Er bíó ennþá á dagskrá árið 2020? Þarf að endurhugsa það hvernig bíóupplifunin á að vera? Eru kvikmyndasýningar hin nýja ópera? Hér er menningarumfjöllun á hæsta plani með lazer show-i, 3D-gleraugum og orkudrykkjum fyrir allan peninginn – sannkallað Cinéma Vérité! Skelltu þér í bíó…
-

Sólarlönd
Á Spáni er gott að djamma og djúsa söng þjóðskáld okkar Íslendinga, sem nú er því miður látinn. Þannig kjarnaði hann stemminguna sem ríkti, og ríkir enn, í kringum sólarlandaferðir þjóðarinnar. Butterfly hnífar, zippo kveikjarar, ódýr raftæki, adihash peysur og tráma – flestir hafa krækt sér í eitthvað af þessu á Spáni í sumarfríinu. Váfuglinn…
-

Þorrablót
Að þessu sinni rýnir Váfuglinn í þjóðlegustu hátíð Íslendinga, Þorrann. Í þættinum veltum við fyrir okkur uppruna þorrablóta og hvað er rétt, satt og ekta í þessum umdeilda málaflokki sem skekur tilfinningar landsmanna á hverju ári. Við förum yfir kræsingarnar sem eru á borð bornar á þessum sælkerasamkomum og skoðum nokkrar mismunandi gerðir þorrablóta. Hlauptu…
