Váfuglinn kom saman í litla læsta herberginu sínu þar sem Váfuglsmenn geta tekið upp hugsanir sínar í friði frá gagnrýni og öðru áreiti.
Í þetta sinn voru þær um hinn göfuga Facebookhóp „Strákahitting“ sem breyttist mjög fljótlega í helsta vígi Hins-hægrisins á íslenska internetinu. Trúarbrögð voru til umræðu – en það kemur í ljós að trúarskoðanir þáttastjórnenda eru jafn ólíkar eins og í „… labba inn á bar“ brandara.
Að lokum voru almenn öryggismál rædd af mikilli alvöru í kjölfar þess að Ríkislögreglustjóri droppaði flaming hot skýrslu á dögunum.


Færðu inn athugasemd