Leynist alltaf í huganum…

Gott kakó

Váfugl dagsins er óhræddur við að taka á stóru málunum bæði heima fyrir og úti í hinum stóra heimi. Við kynnum okkur úrlausn erfiðra deilumála með aðstoð sýnishorna úr bíómyndum og förum svo rakleiðis í Kaupfélagið á Sauðárkróki.

Um leið og vorið heldur loks innreið sína í Vaglaskóg fyrir norðan, skoðum við stöðuna í menningarmálum á Íslandi yfir eldglóandi, hráum kakóbolla. Við ljúkum svo flugferðinni hjá hinni eldhressu Guðrúnu í borg lystisemdanna, Las Vegas. Viva Las Vegas!

Glöggir áheyrendur kunna ef til vill stundum að heyra bank í ofnalögnum í bakgrunninum. Eru „laumufarþegar“ í kjallaranum á upptökuveri Váfuglsins?

Færðu inn athugasemd

Comments (

0

)